05 desember 2007

Doktorskeila

Skrapp í keilu með doktorsnemunum á Energi (samansafn af nokkurm sérhæfingum, Face, Power electronics, Mechanics og High Voltage sem er mitt fag). Eins og sjá má er ekki mikið um kvennnemendur í doktorsnáminu.

Strákarnir tóku sig hinsvegar vel út á keilubrautinni. Mér tókst með undraverðum hætti að vera ekki alveg neðst í bæði skiptin, svo ég var bara nokkuð sátt.

Er ekki samt einhver þarna úti sem langar með mér í keilu við tækifæri? Það er rosalega gaman og ég er mjög góður andstæðingur, get garanterað að þú farir með vinninginn ;o)


1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég skal alveg skella mér í keilu með þér einhvern tímann, hérna á klakanum, en þú vinnur mig alveg pottþétt.

Held að þú eigir e.t.v. minni möguleika ef þetta væri pílukast :P

Kv. Andrea.