10 júlí 2008

Lítill heimur

Já það má með sanni segja að heimurinn er lítill, næstum því of lítill. Sérstaklega í þessum litla geira sem ég hef valið að sérhæfa mig innan.

Haldiði ekki að gamli yfirmaðurinn minn hjá ISAL hafi lært með yfirmanni Per félaga míns hjá Energinet.dk og svona má lengi telja.

Fyrir stuttu hringir svo stóri bró í mig og spyr hvort ég sé alveg klikk og geri ekkert annað en að læra? Ég gapi bara og spyr HAAA!!! klikk, hvað meinaru? Jú þá hafði einhver sagt við hann (hann er notabene ekki innan verkfræðinnar heldur í fjármálageiranum) að hann þekkti einhvern sem þekkti mig og hafði frétt af verðlaununum mínum og sá hinn sami hafði sagt honum að ég væri gjörsamlega klikk og sinnti engu öðru en að læra. Hmmmmm........hmmm hver þekki hvern og hversu miklar öfgar verða í sögum þegar þær flytjast svona manna á milli? Ég verð nú að segja sjálfri mér til varnar og öðrum til upplýsinga, að þó svo ég sinni lærdómnum eins og vinnu sem mér finnst einstaklega skemmtileg, þá er ég hvorki klikk né þannig að ég sinni engu öðru. Ég á sumsé fjölskyldu og vil halda því fram að ég sé ekki síðri móðir en hver önnur sem stundar sína vinnu. Ég t.d. er í stjórn foreldrafélagsins í leikskólanum hjá syni mínum og sinni því starfi á fullu. Þar að auki er ég mjög virk um hverja helgi að fara með drengina mína í skógarferðir, skemmtigarðaferðir, rólóferðir og hvert sem okkur langar á þeim tímapunkti. Þar að auki er ég á saumanámskeiði á veturna og skemmti mér við að sauma smáflíkur á börnin mín og fyrir mína nánustu. Svo má segja að ég sé ágætlega dugleg að taka myndir af prinsunum mínum og setja á netið fyrir þá sem missa af því að vera í kringum þá, því t.d. í júní voru settar inn vel yfir 200 myndir.
Var síðastliðinn vetur líka í mömmó sem ég, fram að febrúar þegar sá litli byrjaði á vöggustofu, stundaði í hverri einustu viku svo litli prinsinn minn fengi tækifæri til að hitta og leika við önnur börn. Börnin mín tvö eru líka miklir mömmudrengir og við leikum okkur mikið saman og þeim er að öllu leiti sinnt og þeir fá fulla athygli og eru mjög þroskaðir og duglegir ungir piltar.

Svo ég veit ekki hvaðan þessi saga kom eða hvernig hún hefur þróast frá manni til manns, en ég er ekki klikk og jú ég sinni bæði manninum mínum (sem ég hef nótabene verið með í 12 ár) og prinsunum mínum tveimur. Ég sé um heimilið mitt, elda matinn daglega, stunda félagslíf og íþróttir og á marga góða vini. Svo ég vona að svona hlutir fari ekki á stjá aftur, því þó ég sinni mínu starfi og hef verið svo heppin að ganga vel og fá góðar niðurstöður þá hef ég mér einni mjög gott líf með minni fjölskyldu.

Það má eiginlega segja að ég sé einstaklega heppin ung kona, því ég elska bæði manninn minn út af lífinu, sé ekki sólina fyrir börnunum mínum og hef ofsalega gaman af starfinu mínu.

Annars er ég í sumarfríi á Íslandi núna og bið að heilsa öllum bæði í DK og hérna á klakanum (komin með ísl. númer, 695-6075).



Bestu kveðjur frá þessari klikkuðu


Vinnu- ég



Mamman-ég



Eiginkonan-ég


Vinkonan-ég


5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Haha þetta finnst mér fyndið!!! Því ég held að ég hafi ekki kynnst manneskju eins og þér áður....að geta staðið sig svona vel í öllu og við höfum meira að segja oft talað um það hversu dugleg þú ert í öllu Unnur Stella mín :) En svona eru þessar sögur sem oft fara á stjá, eiga ekki einusinni við rök að styðjast! Fólk er bara sárt yfir að standa sig ekki eins vel og þú...
Hafðu það gott á Íslandinu frú Klikk haha ;)

Knús úr Keflavíkinni
Erna og co

Nafnlaus sagði...

Hæhæ langaði rosa til að kommenta á þessa færslu hjá þér þar sem ég gat ekki annað en brosað. ég var sem sagt að segja pabba frá því hvað þér gengi vel að samræma líf þitt og hvað þér gengi vel í þessu öllu og hann var ekkert smá ánægður að heyra og bað mig að skila kveðju til þín.
Mátt allavega vita að þú ert rosalega dugleg og ég efast ekkert um það að allir sem þig þekkja og hafa þekkt séu stolltir af þér:) Bið rosalega vel að heilsa öllum. Það væri nú ekkert leiðinlegt að hitta þig eitthvað:) Hvenær ferðu út aftur?
Kv. Rakel Jóna
p.s. spáðu 12 ár síðan við vorum í tölvunni og skruppum á Hlemm og tónleikana hmmmm. hehe

Nafnlaus sagði...

Sælir veri duglegir danir. Ég segi bara hallelúja við svarinu þínu, Unnur Stella. Frúin á Mýrum segir oft sögur af Jóhanni Gunnari og frú, og þær eru oftar af því hvað þið eruð dugleg að skapa góðar minningar, heldur en gáfunum, sem eru auðvitað líka yfir meðallagi!!! Þér tekst bara einstaklega vel að sameina allar Unnurnar í þér!!! Njótið dvalarinna á landinu og auðvitað rennið þið við í heimsókn á leið ykkar um hringinn. Knús á línuna og kveðjur úr sveitinni.

Nafnlaus sagði...

Mig grunar nú að svona athugasemdir eigi uppruna sinn að rekja frá fólki sem er haldið ákveðinni öfundsýki. Þegar öfundsýkin sest að í fólki, reynir það eftir eftir fremsta magni að finna galla hjá aðilanum sem er að standa sig betur en hann sjálfur í lífinu. Maður hefur oft rekist á svona "hegðun" hjá fólki á lífsleiðinni og sennilegast mun þetta aldrei stoppa :)

Þrátt fyrir að það særi mann mjög að fá svona athugasemdir á sig, þá er eina leiðin að virða svona athugasemdir að vettugi. Ætti ekki að vera erfitt í þínu tilfelli, enda ofurmamma, ofurvinur, ofurnámsmaður og ofureiginkona :)

Kveðja,
Margeir

Nafnlaus sagði...

Unnur mín! Það er þú sem ert undir stýrinu í þínu ífi og það er engin sem getur skilgreint þínar "grænser" nema þú sjálf. :) Njótu þess sem þú átt, hefur skapað og ert, og látu nú ekki aðra hafa áhrif á þig eða hvað þér langar og hvað þú getur.
Dillan