26 október 2007

Búið að fjárfesta í miða

Já loksins erum við búin að kaupa miða heim um jólin. Þetta var alltof dýrt en ég hugsa að það verði vel þess virði. Komumst heim í jólasteikina og flugeldana og hittum vini og vandamenn auk þess sem litli prinsinn verður skráður í samfélag hinna trúuðu.

Annars vorum við með mömmó hérna hjá okkur í gær og í kvöld ætla ég að skreppa út í smá partí sem ég, Hanna og Olga erum að skipuleggja. Það verður Halloween partí með búningum og látum og er orðin frábær stemning fyrir skemmtunina. Búið að bjóða mér í mat og fyrirpartí og allt saman, svo heilmikil spenna fyrir því að skreppa aðeins út og skilja strákana þrjá eftir í pelaviðræðum (gaman að sjá hvernig það gengur).
Set inn myndir frá hrekkjavökuballi um helgina.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman að "heyra" í þér Unnur Stella! Og skilaðu góðu afmælisknúsi til Gunnars! Hann er greinilega jafnstór og Saga(sem segjist vera 7ára.....!) Og til hamingju með litla kút!

p.s. góða skemmtun í kvöld...;o)

Kveðjur,
Eydís, Ísabella og Saga.