31 maí 2007

Komið að kveðjustund


Elsku amma okkar.

Innilegar þakkir fyrir öll þau dásamlegu ár sem við höfum átt með þér og fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir okkur. Við eigum eftir að sakna þín mikið, en vitum að nú loksins færðu að hvílast og láta þér líða vel eftir langa og erfiða baráttu. Nú loksins færðu að faðma hann Hjört afa aftur og hann Kjartan frænda, ásamt öllum hinum sem við öll elskum og söknum. Elsku amma okkar, gangi þér vel í þinni hinstu ferð og megi englarnir vaka yfir þér og leiða þig til himins. Við erum öll óskaplega þakklát fyrir alla þína ást og alla þá orku sem þú deildir með okkur og sýndir okkur í þínu merka og stórkostlega lífi. Það eru fáar manneskjur jafn indælar og góðviljaðar og þú og við erum þakklát fyrir að þú snertir líf okkar.

Megi góður Guð fylgja þér elsku amma Guðrún og kysstu nú alla hina englana frá okkur.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Samhryggist ykkur innilega vegna fráfalls ömmu Jóa :(.

Nafnlaus sagði...

Ég rakst á síðuna þína fyrir tilviljun og er fegin því. :) Þú manst kannski eftir mér, ég vann með þér hjá ÍSAL sumarið 2001 held ég. Til hamingju með fjölskylduna og bumbubúann. Hlakka til að sjá myndir af nýjasta fjölskyldumeðliðnum, þ.a. ég myndi þiggja lykilorðið inn á síðuna svo ég geti fylgst með gullunum ykkar.


Samhryggist ykkur innilega, og sérstaklega þar sem þið komist ekki heim.

Nafnlaus sagði...

Ég samhryggist innilega með ömmuna.
Kv. Andrea.

Nafnlaus sagði...

Við Gummi vottum ykkur samúð okkar. Farið vel með ykkur.